Árið 2012

 

 

14. og 15. júlí 2012. 

FIELD mót Donderdonk, Hollandi.

Þetta er í annað skiptið sem ég keppi í FIELD og það er það alskemmtilegasta sem ég hef komist í. Keppnin fer þannig fram að það eru gerð út lið sem samanstanda af 4 keppendum. Þessi lið fara svo um völlin eftir númerum og eru venjulega tekin 6 skotmörk í hverri ferð. Samtals eru 24 skotmörk yfir daginn (hvert mót). Þetta mót var blanda af merktum vegalengdum og ómerktum og fór keppnin fram í skógrækt (sú stærsta í Evrópu var mér sagt) og þar sem það hefur varla stytt upp í Hollandi það sem af var sumri var hún vægast sagt forug og leðjan oft vaðin upp yfir ökla. Það gekk vonum framar því ég var hálf smeykur um að ég væri ekki nógu æfður í að mæla vegalengdir og var ég 9. eftir fyrri daginn. Ég beið ekki eftir úrslitum seinni daginn. Þetta mót var eina mótið sem þeir höfðu til að velja í liðið sem þeir senda á heimsmeistarmótið í Frakklandi í næsta mánuði. Þar af leiðandi var þetta mjög sterkt mót, 96 keppendur og þar af rúmlega 50 í mínum flokk. Það eru myndir í möppu og 1 vídeó sem sýnir aðeins hvernig rigndi.


 


30. júní 2012. 

Íslandsmót utanhús að Laugum, Reykjadal.

Keppt var á 50 metrum, 2*36 örvum + úrslit.

Fyrri umferð 335 stig, seinni umferð 315 stig. Það blés hraustlega ískaldri norðanátt. Í úrslitum keppti ég við Jón M (6-2) og Þröst (6-0). Vann gull. 

Seinna um daginn var svo keppt í hálfum FITA hring. Þ.e. 50 og 30 metra færi. 50m = 298, 30m = 345.

 

 

31. mars og 1. apríl 2012. 

Íslandsmót í Laugardalshöll.

293 og 287 eftir fyrri daginn ,efstur.

Tvær úrslitaumferðir seinni daginn. Jón M, vann hann 6-0.

Og Þröstur í seinni. Við vorum jafnir eftir 3 umferðir 3-3 og jafn mörg stig 87. Ég náði 29 í síðustu en hann eitthvað minna. Vann 5-3 og fékk gull.


 


3. og 4. mars 2012. 

Tambar open og F2F á Eiði í Færeyjum.

Vann báða dagana. 


 


14. og 15. jan 2012. 

RIG.

Það gekk nokkuð vel í opnu lotunum. 287 og 288 stig. Á sunnudag vann ég Kristinn, Þröst og Jógvan í úrslitum. Vann gull.


Árið 2011

 

17. og 18. des 2011. 

Berlin Open.

Það gekk bærilega í opnu lotunum. Vantaði 1 stig til að vera öruggur í úrslit og þurfti að skjóta shoot off til að komast áfram. Setti tvisvar í X en það dugði ekki til. Seinni daginn var mót fyrir þá sem ekki komust áfram fyrri daginn og þar gekk mjög vel. Vann bol og örvamæli.

 

19. og 20 nóvember 2011.

Reykjavíkurmót Í.F.R.

1144 stig samtals. Gull.  

 

Lok ágúst og byrjun september 2011.

Field bogfimi í Hollandi.

Hef aldrei skotið svona mót áður og hafði mjög gaman af. Johan Dongen tók það að sér að sýna mér hvernig vegalengdir eru mældar á föstudeginum og laugardeginum. Á sunnudeginum fórum við svo á mót.  Myndir eru í albúmi.

 

12.-15. Febrúar. 2011

Tambar Open.

 

Janúar 2011. 

RIG.

Árið 2010

 26-27. júní 2010

Hamranesvöllur, Íslandi

Miðnæturmót í bogfimi á Hamranesvelli er eitt það skemmtilegasta sem ég hef tekið þátt í og hef ég þó farið víða og keppt. Andinn og umhverfið var alveg frábært svo vægt sé til orða tekið. Nokkrir dropar komu þegar við vorum að skjóta 50 metrana en það var bara til að hreinsa loftið. Þegar búið var að keppa var töluverð bið eftir að úrslit lágu fyrir svo þeir sem voru með langboga og þess háttar voru að leika sér með flu-flu örvar að skjóta á fljúgandi skotmark og höfðu gaman af.

Það er mjög sérstakt að skjóta við þessar aðstæður og gerir aðrar kröfur en venjulega. Það var hinsvegar algert logn og það var auðvitað mikið að hjálpa.

Undirbúningur gekk mjög vel á laugardaginn og gekk allt upp og öll umgjörð þeim til mikils sóma sem að þessu stóðu. Úrslitin voru líka mjög góð fyrir mig þar sem ég vann minn flokkSmile. Það var skotið á 50 og 30 metra færi, 36 skotum á hvora vegalengd og endaði ég með 683 stig. http://bogfimi.net/page3/page3/midnight2010.html

Ég heyrði á þeim gestum sem komu að það ætti endilega að halda þetta oftar og vona ég sjálfur að svo verði.

 

 

 

flag-uk12.-13. júní 2010

Sherwood, Englandi.

 

12. FITA mót hjá Sherwood Archers. Gekk vel til að byrja með á 90m en svo fór aðeins að halla undan fæti. Fékk hæsta skor dagsins á 50m. Endaði með 1328 stig sem er ekki alveg nógu gott. 4.sæti.

13. 4* 70m. Gekk mjög vel í fyrstu tveim lotum með rétt undir 340 stig í hvorri. Þá var ég með 12 stiga forskot á næsta. Eftir þriðju lotu missti ég niður 10 stig. Ég náði 340 stigum í síðustu og endaði með 6 stiga forskot (1347) og vann GULLLLLLL.

 

iceland20.-21.mars 2010

Íslandsmót

Endaði í fyrsta sæti með 1138 stig http://www.bogfimi.net/page3/page3/islandsmot2010.html   ( http://www.facebook.com/photo.php?pid=3821391&id=181718122638 )

 

faroe_islands_flag_large12.-15.febrúar 2010 

Færeyjar

Setti nýtt Íslandsmet og nýtt Færeysktmet (587 stig). Endaði í fyrsta sæti.

 

holland-flag7.-10.janúar 2010

Holland

Æfingaferð

 


Árið 2009

iceland21.-22.nóvember 2009 

Reykjavíkurmót ÍF 2009

Lenti í 1.sæti og setti nýtt Íslandsmet, 1.162 stig. ( http://bogfimi.net/page3/page3/rmot09.html )
jan10 011 
img_3527-2

 

holland-flag29.-30. ágúst 2009

Boekel, Hollandi.

FITA utanhús. 3 ný íslandsmet og endaði í fyrsta sæti í mínum flokk. 

324 á 90m nýtt met

344 á 70m nýtt met

336 á 50m og

352 á 30m.

Samtals 1356 stig - nýtt met.

 

flag-uk13.-14.júní 2009

Sherwood  Englandi 2009 - FITA utanhús fyrri daginn og 2*70m seinni daginn.   Lenti í 4.sæti & 2.sæti.

jan10 008

 

   iceland 

21.-22.mars 2009

 

Íslandsmót ÍF 2009 - Lenti í 1.sæti (1.119 stig)  http://www.bogfimi.net/page3/page3/islandsmot09a.html

jan10 013

 


Árið 2008

 29.11-30.11 2008 

Reykjavíkurmót. 1148 stig og sigurinn var minn þrátt fyrir bilanir og alls kyns vesen. 

 

23.- 28 júní 2008. 

Boé, Frakklandi. Fjórði leggurinn í World Cup mótaröðinni. http://www.archery.org/

Komst áfram mað sama stigafjölda í Vittel (334 og 336) 670 stig samtals. Vann fyrsta head to head. Endaði í 26. sæti.

 

 9.-18. mai 2008.

Evrópumót utanhús. Það er í Vittel, Frakklandi. http://www.arc-vittel2008.com/

Það gekk allvel í fyrri umferðinni. 340 stig sem er nýtt Íslandsmet. 330 stig í seinni umferðinni. Komst í gegnum fyrsta niðurskurðinn. Datt út á móti Sergio Pagni.

 

 

USA_flag22.-24.febrúar 2008

Las Vegas, USA, NFAA World Archery Festival ( http://www.nfaa-archery.org/tournaments/vegas/ )

Á föstudeginum byrjaði ég að keppa klukkan 10.00.  Keppendur á mótinu voru um 600 talsins og í mínum flokki kepptu 211.  Gekk mér ekki alveg nógu vel því hér heima var ég að skjóta 297 þegar vel gekk.  Endaði ég fyrri daginn með 293 stig, af 300 mögulegum.  Á laugardeginum keppti ég kl. 15:30. Það gekk mun betur þann daginn eða 297 stig. Samtals 590 af 600 stigum sem er kannski ekki svo slæmt.

Sjá myndband af mótinu:

norway_flag1.-3.febrúar 2008

Stavanger,Noregur - Vann þriðja sætið þar!   Fékk þessa fínu kristalsskál í verðlaun.

þriðju verðlaun_stavanger

Á laugardeginum var innanhús FITA round. Þ.e. utanhúsvegalengdir innanhús, allar nema sú lengsta sem á að vera 90m enn var í þessu tilfelli 83m. Skotið var 36 örvum á 83m, 36 á 70m 36 á 50m og 36 á 30m. Hámarksskor er 1440 stig. Á lengstu vegalengdinni fékk ég 303 stig, 70=327, 50=332 og á síðustu þ.e. 30m setti ég persónulegt met 357 stig. Aðeins þrjár níur í 36 skotum. Samtals 1319 stig. Á fyrstu vegalengdinni var ég enn að stilla nýjann boga fyrir nýjar örvar.

Á sunnudeginum var eins konar face to face keppni á 70m færi þar sem dregið er í 7 manna riðla og keppa þeir innbyrðis maður á mann. Ég vann allar mínar keppnir og fékk líka mjög gott skor. Ef maður vinnur þá fær maður 2 "match points" 1 ef maður gerir jafntefli og ekkert ef maður tapar. Ég fékk 12 "match points". Þeir sem eru hæstir eru settir saman í 3ja mann riðla sem keppa um 1. 2. og 3. sætið og svo framvegis. Ég var næst hæstur og var þar af leiðandi í sterkasta riðlinum fyrir úrslitin með Mats Inge og Morten Boe. Ég tapaði með 2 stigum fyrir Mats og 1 stigi fyrir Morten. Morten vann Mats í þeirra keppni og vann þar af leiðandi mótið. Ég er mjög sáttur við þennan árangur og hlakka til að fara á næsta mót sem er í Las Vegas.

Morten og Mats


Þau mót sem ég keppti á, árið 2007

 

Belgium%20flag%202Mánaðarmótin nóvember-desember 2007

Mol,Belgía - Innanhúsmót, lenti í 5.sæti.

 

norway_flag16.- 18.nóvember 2007.

Lilleström, Noregi og lenti í 4.sæti.

 

íslenski fáninn10.-11.nóvember 2007

Reykjavíkurmót 2007 - lenti í 1.sæti (1.139 stig)

Fyrstu verðlaun Reykjavíkurmót 2007

 

netherlands_flag_270Mánaðarmótin Október/Nóvember 2007

Holland, Æfingarmót

 

netherlands_flag_270Ágúst 2007

Holland, Æfingarmót

 

irlandJúní 2007

Dublin, Írland - Fékk brons.

Þriðju verðlaun

 

íslenski fáninn24.-25.mars 2007

Íslandsmót ÍF 2007- Lenti í 1.sæti (1.138 stig)

 

turkey-flag10.-18. Mars.2007  

Izmir, Tyrklandi.Heimsmeistaramót innanhús í   Endaði í 46. sæti með 573 stig.

Heimasíða FITA, síða mótsins.

http://www.archeryworldcup.org/default.asp?s_id=0&m_id=410

Hér er smá myndband frá því móti, (ég er sjötti frá vinstri, þessi svartklæddi):

 

france-flag 26.-29. Janúar 2007.

Nimes,Frakklandi. European Championship. (Evrópumót) 

Heimasíða mótsins.

http://tournoi-europeen.tiralarc.net/home/


Þau mót sem ég keppti á, árið 2006

netherlands_flag_2707.-10.Desember 2006

Amsterdam, Holland - Face to Face mót. 19. sæti.

Heimasíða mótsins.

http://www.face2face-archery.org/

 

netherlands_flag_27016.-21.Nóvember 2006

Holland - Æfingamót. Vann eitt mót innandyra á nýju Íslandsmeti(582 stig,60 örvar)

 

íslenski fáninn4.-5.nóvember 2006

Reykjavíkurmót 2006 - Lenti í 1.sæti. (1.154 stig)

 

netherlands_flag_27024.-28.ágúst 2006

Boekel, Holland - Æfingarmót utanhúss.

307 stig á 90m, 335 stig á 70m, 330 stig á 50m, 355 stig á 30m. Samtals 1327 stig af 1440 mögulegum.

 

Faroe Island flag24.-28.júlí 2006

Þórshöfn,Færeyjar - North Atlantic Open. Varð í þriðja sæti eftir tvær umferðir,datt svo út, man ekki hver ég endaði.

 

íslenski fáninn25.-26.mars 2006

Íslandsmót ÍF 2006 - Lenti í 1.sæti (1.130 stig)

 

spanish flagMars 2006

Jaen, Spánn - Evrópumót innanhúss. Finn ekki opinbera síðu um þetta mót. Ég missti af að komast í 32 manna úrslit. Var jafn einhverjum Tyrkja í 32 sæti og tapaði í "shoot off", endaði í 33.sæti. Mér til varnar var ég inni samkvæmt skráningu á tölvuskjánum og var byrjaður að borða hádegismat þegar var kallað í úrslitaskotið. Man það næst að bíða eftir "official result".


Þau mót sem ég keppti á, árið 2005

íslenski fáninn19.-20.nóvember 2005

Reykjavíkurmót 2005 - Lenti í 1.sæti (1.143 stig)

 

netherlands_flag_270Nóvember 2005

Amsterdam,Holland - Face to Face mót

Heimasíða mótsins.

http://www.face2face-archery.org/

 

netherlands_flag_270Október 2005

Holland, Æfingarmót

 

FlagBigDanish 23.-27.mars 2005

Aalborg, Danmark - 8th Indoor World Champinoships (Heimsmeistaramót innanhúss). Mótið sem ég ætlaði að ná inn í 32 manna úrslit.

 Úrslit á pdf.

http://www.archeryworldcup.org/UserFiles/Document/Results/Results/Before2006/Indoor/2005_Indoor.pdf

íslenski fáninn12.-13.mars 2005

Íslandsmót 2005 - Lenti í 1.sæti (1.148 stig)

 

netherlands_flag_270Janúar 2005

Holland, Æfingarmót


Þau mót sem ég keppti á, árið 2004

Belgium%20flag%202netherlands_flag_270Nóvember 2004,

Belgía & Holland, Æfingarmót

 

netherlands_flag_270September, 2004

Holland, Æfingarmót. Fyrsta sinn sem ég fór að hitta Hans Blum sem hefur þjálfað mig síðan. Við gerðum plan til nokkurra mánaða og settum markið á að ég kæmist í 32 manna úrslit á heimsmeistaramótin í Álaborg í mars 2005. Á heimsmeistaramótin náði ég 25 sæti.

 

irlandÁgúst, 2004

Írland, Leixlip - Irish Open. Fór með Guðmundi sem hafði farið þangað áður og kepptum við í roki og rigningu að Írskum sið. Vann einhvern pening en man ekki alveg í hvaða sæti ég endaði.

 

íslenski fáninn22.-23.mars 2004

Íslandsmót 2004 - Lenti í 1.sæti (1.131 stig)

 

flag_swedenkopieraJanúar, 2004

Malmö, Svíþjóð - Malmö Open. Fyrsta mót innanhús sem ég fór á utan Íslands. Komst í gegnum 32 manna niðurskurðinn enn man ekki hvar ég endaði.


Þau mót sem ég keppti á, árið 2003

 

íslenski fáninn8.-9.nóvember 2003

Reykjavíkurmót 2003 - Lenti í 1.sæti (1.126 stig)

 

USA_flag19.-20.júlí 2003

New York,Usa - 42nd World Archery Championships (Heimsmeistaramót utanhúss)

Fyrsta mótið sem ég keppti á utan Íslands. Úrslit mótsins á pdf.

http://www.archeryworldcup.org/UserFiles/Document/Results/Results/Before2006/Outdoor/2003_Outdoor.pdf

Ég á slatta af flottum myndum frá New York sem ég þarf að finna og setja inn.

 

íslenski fáninn22.-23.mars 2003

Íslandsmót ÍF 2003 - Lenti í 1.sæti (nýtt Íslandsmet, (1.101 stig )


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband